Norsk

Connect Istanbul” aðstoðar þitt fyrirtæki við að ná árangri á ferð þinni um Istanbúl.

Connectistanbul” aðstoðar hina ýmsu hópa s.s. vinnuhópa, námsmannahópa og áhugamannahópa, við að:
• Hitta fólk sem býr í Tyrklandi.
• Fá óháðar ráðleggingar um val á hótelum, gistiheimilum og veitingastöðum.
• Fá upplýsingar um tónleika, listsýningar og aðra menningarviðburði.
• Koma á sambandi við tyrkneskar stofnanir.
• Gera tímaáætlanir.
• Finna leiðir til gagnvirkra samskipta.
• Finna tyrkneskan sérfræðing í hvert verkefni.
• Gera dvöl þína í Istanbul sérstaka og ógleymanlega

Connectistanbul” aðstoðar einnig þá sem vilja skipuleggja hluta ferðarinnar sjálfir en þurfa einungis á sérþekkingu innfæddra að halda, að hluta til. ,,Connectistanbul” þiggur laun fyrir hverja unna klukkustund og nýtur ekki styrkja. Við veitum 100% óháðar ráðleggingar. Við vinnum fyrir þig.

Connectistanbul” var hannað af hollenskum listamanni og skipuleggjanda, Teike Asselbergs (fædd í Hollandi 1973), sem býr bæði í Istanbúl og Hollandi. Hún heimsótti Tyrkland fyrst 1989, en hefur að hluta til haft búsetu í landinu síðan 2006 eftir að hún giftist tyrkneskum manni. Hún ann Tyrklandi og vill gjarnan aðstoða erlenda ferðamenn við að upplifa og kynnast fólki og menningu í Istanbúl. Hún talar hollensku, ensku, þýsku og tyrknesku auk þess sem hún skilur frönsku.

Umsagnir
,,Ég á ljúfar minningar eftir heimsókn mína til borgarinnar, enda fannst mér alltaf eins og ég væri ,,heima hjá mér.” Ekki má gleyma því að ráðstefnuhaldið féll í afar góðan jarðveg. Eitthvert mesta hrósið frá viðskiptavinum okkur, þökk sé ykkur, er að þeir segja okkar fyrirtæki gera fólki kleift að njóta líðandi stundar. Þeim fannst allar staðsetningarnar framúrskarandi.” Christina van Oostrum (CEO)

,,Ég er enn ástfanginn af Istanbul og það sama segir Cathelijne! Þess vegna langar okkur að reyna að halda annað námskeið. Verðum í sambandi! Þúsund þakkir fyrir ykkar fjölbreytta og mikilvæga innlegg.” Sophie Krier (professor í hönnunardeild Gerrit Rietveld Academy)

,,Halló Teike, þú reyndist vera mikill viskubrunnur og það er þér að þakka að ég endaði á að taka viðtal við Deniz hjá Galata Perform fyrir lokaverkefnið mitt.” Janneke Van Der Putten (listnemi)

Ráðleggingar:
1. fáið farsímanúmer tyrneska tengiliðarins.
2. Finndu kennileiti sem skagar hátt til að átta þig betur á eigin staðsetningu.
3. þú getur sloppið við umferðarteppur á annatíma með því að ferðast yfir Bosporus.
4. það borgar sig að sleppa því að snerta Kóraninn þó að hann liggi í gluggasyllum Moskanna sem þú lítur inn í.
5.það er gagnlegra að fá leiðbeiningar um hvert skal halda heldur en að fá heimilisfang.
6. Ef að það stendur ekki ,,servis dahil” á reikningi veitingastaðar þá þýðir það að þau 10% sem þú greiðir sem þjórfé eru einu laun viðtakandans.
7. Leigubílstjórar í Istanbúl fá ekki greitt þjórfé.
8. það er betra að ná í leigubíl við leigubílastöð heldur en þá sem aka framhjá. Flestir bílstjóranna þekkja einungis næsta nágrenni og þegar þeir koma í það hverfi sem þú ætlar í þá biðja þeir bílstjóra leigubílastöðvanna þar, um leiðbeiningar.
9. Gangandi vegfarendur á leið um stíga og götur eru oftast virtir að vettugi. Þú ferð yfir götu á eftirfarandi hátt: þú safnast ásamt fleirum í hóp sem samanstendur minnst af um 6 manns og svo farið þið í þéttum hnappi í gegnum bílaumferðina.
10. Í Istanbúl fer folk yfir götur þegar umferð stöðvast ekki þegar göturnar eru auðar.
11. ,,Ó nei, ber strætisvagninn/leigubíllinn ábyrgð á þessu???” Já og sagan mun endurtaka sig hvar og hvenær sem er.

Áframhald og félagsleg ábyrgð:
,,Connectistanbul” er aðal styrktaraðili Contactistanbul, sem er fyrirtæki sem vinnur í samvinnu við litlar og meðalstórar listastofnanir. Markmiðið með contactistanbul.org er að gera þessar listastofnanir enn sjáanlegri í Istanbul svo að þær laði til sín styrktaraðila og sjái sér farboða. Contactistanbul.org útvegar ekki einungis fé heldur stuðlar einnig að stofnun sjóða og fjárveitingum úr alþjóðlegum sjóðum. Einnig sér fyrirtækið um að þjálfa sjálfboðaliða listastofnananna í hinum ýmsu störfum (markaðssetningu, gerð fjárhagsáætlanna, skýrsluskrifum og verkefnastjórn.)